Dagsetning:
15. 07. 1972
Einstaklingar á mynd:
-
Einar Sigurjónsson
-
Sighvatur Bjarnason
Úrklipputexti:
Clinton lætur af embætti.
Þorskurinn undir smásjá í Eyjum
Ráðgert er að í Vestmannaeyjum taki nú bráðlega til starfa, eða líklega í ágústmánuði, Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins, sem er sjálfseignarstofnun í Eyjum, komið upp af fiskvinnslufyrirtækjum.
Stofnunin verður rekin í nánu sambandi við Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins í Reykjavík, og hafa verið veittar fjárveitingar frá ríkinu, ein milljón kr. Fyrirtæki í Eyjum hafa lagt um það bil fimm milljónir í stofnunina og búist er við að sú upphæð fari upp í 6-7 milljónir. Öll nauðsynleg tæki sem þarf við starfsemina eru þegar komin til Eyja, en aðeins á eftir að ganga frá innréttingum, og er starfsemin til húsa í byggingu Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum