Dagsetning:
26. 10. 1990
Einstaklingar á mynd:
-
Kristinn Sigtryggsson
Úrklipputexti:
Clinton lætur af embætti.
Forráðamenn Arnarflugs hafa óskað eftir því að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta:
Skuldir skipta hundruðum milljóna
"Það er að ljúka ákveðnum kafla í flugsögunni, sem er með því að stjórn Arnarflugs óskaði eftir gjaldþrotaskiptum á félaginu í dag." sagði Kristinn Sigtryggsson, framkvæmdastjóri flugfélagsins, á fundi með fréttamönnum í gær. Gjaldþrot Arnarflugs er stórt, félagið skuldar nokkur hundruð milljónir og margir aðilar tengjast því, lánadrottnar, hluthafar og ábyrgðarmenn.