Dagsetning:
16. 08. 1982
Einstaklingar á mynd:
-
Steingrímur Hermannsson
-
Ólafur Ragnar Grímsson
Úrklipputexti:
Clinton lætur af embætti.
Svínbeygður Framsóknarflokkur
Einu aðgerðir núverandi ríkisstjórnar í vaxandi efnahagsvanda þjóðarbúsins allan feril hennar hafa verið bráðabirgðaúrræði og skammtíma-ráðstafanir á fárra mánaða fresti, sem engin döngun hefur verið í. Í hvert eitt sinn, sem ríkisstjórnin hefur lotið að slíkum sýndarúrrræðum, hefur Framsóknarflokkurinn heitið því hástöfum, að næst þegar tekist verði á við vandann kæmu alvöruaðgerðir til sögunnar. Jafnoft hefur Framsóknarflokkurinn lekið ofan í nýja sýndarmennsku.